Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

212. fundur 18. maí 2016 kl. 06:30 - 08:30 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Bergur Álfþórsson formaður
  • Ingþór Guðmundsson varaformaður
  • Björn Sæbjörnsson aðalmaður
  • Jóngeir Hjörvar Hlinason áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri
Dagskrá

1.Skýrsla bæjarstjóra

1603003

Fundardagbækur bæjarstjóra (vinnuskjöl)
Vikuyfirlit bæjarstjóra (vinnuskjöl) vikur 16 - 19.

Lagt fram.

2.Húsnæðismál grunnskólans

1404060

Tilboð í færanlega kennslustofu.
Kostnaðaráætlun vegna klæðningar utanhúss.
Lögð fram að nýju kostnaðaráætlun vegna klæðningar utanhúss á húsnæði grunnksólans. Einnig lögð fram kostnaðaráætlun / tilboð vegna færarlegrar kennslustofu við grunnskólann.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir að ráðist verði í framkvæmdir við utanhúsklæðningu, kostnaður við framkvæmdina rúmast innan framkvæmdaáætlunar 2016. Bæjarráð frestar að svo stöddu ákvörðun um kaup á færanlegri kennslustofu við grunnskólann.
Björn Sæbjörnsson óskar eftir að fyrir liggi fagleg úttekt á húsnæðismálum skólans fyrir næsta fund bæjarráðs.

3.Mánaðarleg rekstraryfirlit 2016

1602051

Málaflokka- og deildayfirlit janúar - apríl 2016
Málaflokka- og deildayfirlit mánuðina janúar - apríl 2016.

Lagt fram.

4.Uppbygging ferðamannastaða.

1605020

Vinna við landsáætlun um uppbyggingu innviða - greining á uppbyggingarþörf
Erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 2. maí 2016 um vinnu við landsáætlun um uppbyggingu innviða - greining á uppbyggingaþörf.

Bæjarráð tilnefnir Ásgeir Eiríksson bæjarstjóra sem tengilið verkefnisins.
Bæjarráð vísar jafnframt erindinu til frekari úrvinnslu hjá Frístunda- og menningarnefnd.

5.Uppbygging leiguhúsnæðis í Sveitarfélaginu Vogum

1604001

Minnisblað bæjarstóra eftir fund með framkvæmdastjóra ASÍ
Minnisblað bæjarstjóra eftir fund með framkvæmdastjóra ASÍ.

Minnisblaðið lagt fram.

6.Framkvæmdir 2016

1604020

Niðurstaða tilboða í endurgerð Iðndals
Fyrir liggur niðurstaða útboðs á framkvæmdum við endurnýjun Iðndals 2016.
Afgreiðsla bæjarráð:
Bæjarráð samþykkir að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda, Ellerts Skúlasonar ehf., og samið við hann á grundvelli þess.

7.Aukafjárveiting - búnaður fyrir Skólahreysti

1605025

Stóru-Vogaskóli sækir um viðbótarfjárveitingu til kaupa á búnaði fyrir Skólahreysti.
Erindi skólastjóra Stóru-Vogaskóla, beiðni um aukafjárveitingu vegna búnaðar fyrir Skólahreysti, til viðbótar verðlaunafé sem keppnislið skólans vann til er liðið lenti í þriðja sæti keppninnar.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir að veita kr. 50.000 til verkefnisins. Fjárveitingin er tekin af fjárveitingu á bókhaldslið 9991-0684.

8.Aukafjárveiting - kaup á stólum í Frístund

1605024

Stóru-Vogaskóli sækir við viðbótarfjárveitingu fyrir nýja stóla í Frístund
Erindi skólastjóra Stóru-Vogaskóla, beiðni um aukafjárveitnigu til kaupa á nýjum stólum fyrir Frístund.

Afgreiðslu erindisins er vísað til fjárhagsáætlunar 2017 - 2020.

9.Styrkur vegna kajaknámskeiðs

1605026

Fjórir kennarar sækja um styrk vegna kajaksnámskeiðs
Erindi Hilmars E. Sveinbjörnssonar f.h. fjögurra kennara við skólann, sem óska eftir styrk vegna kajaknámskeiðs sem þeir sóttu.

Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.

10.Utankjörfundaratkvæðagreiðsla.

1604021

Erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga um utankjörfundaratkvæðagreiðslu
Erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga um utankjörfundaratkvæðagreiðslu, dags. 19.04.2016

Lagt fram.

11.Umsókn um rekstrarleyfi vegna gististaðar í flokki I. Heimagisting.

1605017

Beiðni Sýslumannsins á Suðurnesjum um umsókn um rekstrarleyfi vegna gististðar
Beiðni Sýslumannsins á Suðurnesjum um umsókn um rekstrarleyfi vegna gististaðar í Akurgerði 17.

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.

12.Frá nefndasviði Alþingis - 449. mál til umsagnar

1604054

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um stofnun embættis umboðsmanns flóttamanna, 449.mál.
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um stofnun embættis umboðsmanns flóttamanna, 449.mál.

Lagt fram.

13.Frá nefndasviði Alþingis - 673. mál til umsagnar

1605014

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um Vatnajökulsþjóðgarð, 673. mál
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um Vatnajökulsþjóðgarð, 673. mál

Lagt fram.

14.Frá nefndasviði Alþingis - 728. mál til umsagnar

1604053

Alllsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um útlendinga, 728. mál
Alllsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um útlendinga, 728. mál.

Lagt fram.

15.Til umsagnar 638. mál frá nefndasviði Alþingis

1604052

Umhverfis- og samgöngunenfnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun 2015 - 2018, 638. mál
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun 2015 - 2018, 638. mál.

Lagt fram.

16.Til umsagnar 670. mál frá nefndasviði Alþingis

1605015

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs og ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur (EES-reglur, stjórnvaldssektir), 670 mál.
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs og ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur (EES-reglur, stjórnvaldssektir), 670 mál.

Lagt fram.

17.Til umsagnar frá nefndasviði Alþingis - 675. mál til umsagnar

1605021

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um grunnskóla, 675. mál.
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um grunnskóla, 675. mál.

18.Fundargerðir Hafnarsambands Íslands 2016.

1601023

Ársreikningur Hafnasambands Íslands 2015
Ársreikningur Hafnasambands Íslands 2015

19.Fundargerðir 2016 Fjölskyldu- og velferðarnefndar Sandgerðis, Garðs og Voga

1602001

Fundargerðir 111., 112. og 113. funda Fjölskyldu- og velferðarnefndar, ásamt kynningu á Fjölskylduvernd.
Fundargerðir 111., 112. og 113. funda Fjölskyldu- og velferðarnefndar, ásamt kynningu á Fjölskylduvernd.

Fundargerðirnar lagðar fram.

20.Fundargerðir Kölku 2016 / Sorpeyðingarstöð Suðurnesja

1601016

Fundargerðir 468. og 469. funda stjórnar Kölku, Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
Fundargerðir 468. og 469. funda stjórnar Kölku, Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja.

Fundargerðirnar lagðar fram.

21.Fundargerðir S.S.S. 2016

1601036

Fundargerð 702. fundar stjórnar SSS
Fundargerð 702. fundar stjórnar SSS

Fundargerðin lögð fram.

22.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2016

1603005

Fundargerð 838. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð 838. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Fundargerðin lögð fram.

23.Fundargerðir Þekkingarseturs Suðurnesja 2016

1602083

Fundargerð 18. fundar stjórnar Þekkingarseturs
Fundargerð fjórða ársfundar Þekkingarseturs
Fundargerð 18. fundar stjórnar Þekkingarseturs
Fundargerð fjórða ársfundar Þekkingarseturs.

Fundargerðirnar lagðar fram.

24.Fundargerðir Öldungaráðs Suðurnesja.

1604006

Fundargerð Öldungaráðs Suðurnesja frá 6. maí 2016
Fundargerð Öldungaráðs Suðurnesja frá 6. maí 2016.

Fundargerðin lögð fram.

25.Fundir Reykjanes Jarðvangs ses, 2016.

1601041

Fundargerð 26. fundar stjórnar Reykjanes Geopark
Fundargerð 26. fundar stjórnar Reykjanes Geopark

Fundi slitið - kl. 08:30.

Getum við bætt efni síðunnar?