Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

302. fundur 24. apríl 2020 kl. 06:30 - 08:50 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Bergur Álfþórsson formaður
  • Ingþór Guðmundsson varaformaður
  • Björn Sæbjörnsson aðalmaður
  • Jóngeir Hjörvar Hlinason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri
  • Einar Kristjánsson ritari
Fundargerð ritaði: Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri
Dagskrá

1.Ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra varðandi skil á ársreikningum sveitarfélaga

2003041

Erindi Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins dags. 27.03.2020 þar sem vakin er athygli á auglýsingu ráðuneytisins varðandi skil á ársreikningum.
Lagt fram
Afgreiðsla bæjarráðs:

Lagt fram

2.Bréf til allra sveitarstjórna vegna frestunar aðalfundar Lánasjóðsins 2020

2004003

Erindi Lánasjóðs sveitarfélaga dags. 7. apríl 2020 um frestun aðalfundar sjóðsins um óákveðinn tíma.
Lagt fram
Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

3.Tjón vegna óveðurs

2002051

Málið áður á dagskrá 301. fundar bæjarráðs. Afgreiðsla málsins (2.tl.) var ranglega bókuð - og því tekin til afgreiðslu að nýju.
Samþykkt
Afgreiðsla bæjarráðs:
Erindið áður á dagskrá 301. fundar bæjarráðs.

Bæjarráð áréttar afgreiðslu sína á máli í 3.tl.: Frestun heimiluð. Að öðru leyti vísast í fyrri afgreiðslu bæjarráðs.

4.Atvinnumál og opinber starfsemi á Suðurnesjum

2004002

Lagt fram
Lagt fram bréf bæjarstjóra Suðurnesjabæjar dags. 3.apríl 2020, bókun bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar 1. apríl 2020.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Erindið lagt fram. Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga tekur undir bókun bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar. Samþykkt samhljóða.

5.Bréf frá ÍSÍ vegna Covid -19

2004001

Erindi forseta ÍSÍ til sveitarfélaga, dags. 1.apríl 2020, vegna íþróttahreyfingarinnar og Covid-19.
Lagt fram
Afgreiðsla bæjarráðs:
Erindið lagt fram.

6.Leyfisbréf kennara

2001028

Minnisblað bæjarstjóra með umbeðnum upplýsingum.
Frestað
Afgreiðsla bæjarráðs:
Minnisblaðið lagt fram. Bæjarstjóra er falið að afla frekari upplýsinga, m.a. um hverjar ákvarðanir nágrannasveitarfélaganna eru varðandi starfs- og opnunartíma leikskóla.

7.Landsmót 50 í Vogum 2022

1909012

Undirbúningur umsóknar UMFÞ um að halda Landsmót 50 árið 2022.
Lagt fram
Afgreiðsla bæjarráðs:
Erindið lagt fram. Bæjarráð samþykkir að bjóða fulltrúum UMFÞ að hitta bæjarstjórn í tengslum við næsta bæjarstjórnarfund og kynna málið.

8.Mánaðarleg rekstraryfirlit 2020

2001034

Rekstraryfirlit mánaðanna janúar - mars (1. ársfjórðunngur) 2020, unnið af KPMG.
Lagt fram
Afgreiðsla bæjarráðs:
Drög að uppgjöri 1. ársfjórðungs lagt fram. Bæjarráð samþykkir að óska eftir sambærilegu uppgjöri mánaðarlega þar til annað verður ákveðið.

9.Framkvæmdir 2019

1902059

Tillaga að samningi um viðbótarverk í fráveituframkvæmdum, vegna hleðslu grjótgarðs
Lagt fram
Afgreiðsla bæjarráðs: Bæjarráð samþykkir tilboð verktaka um frágang grjótvarnargarðs. Bæjarstjóra falin nánari útfærsla málsins, sem og að leita eftir fjárframlagi frá Vegagerðinni vegna uppbyggingu sjóvarnargarðs.

10.Framkvæmdir 2020

2004010

Umfjöllun bæjarráðs um endurskoðun framkvæmdaáætlunar 2020 - m.a. í ljósi Covid-19 faraldurs
Samþykkt
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir að sótt verði um framlag til Vinnumálastofnunar vegna átaksverkefna á vegum ríkis og sveitarfélaga, og veitt verði fjármagni til mótframlags samkvæmt reglum verkefnisins. Bæjarstjóra falið að taka saman upplýsingar og senda umbeðnar upplýsingar um áform sveitarfélagsins til Sambands íslenska sveitarfélaga.

Farið yfir endurskoðun framkvæmdaáætlunar. Bæjarráð samþykkir að ráðist verði í lagningu göngustígs. Samþykkt að fresta yfirlagningu malbiks til næsta árs, þó er samþykkt að heimila yfirlögn frá Vogabraut að Skyggnisholti. Farið yfir viðhaldsverkefni, og ákveðið að óska eftir að forstöðumaður Umhverfis og eigna komi á næsta fund bæjarráðs og fari yfir málið.

11.Fjármál og rekstur sveitarfélagsins í ljósi Covid-19

2003037

Yfirferð og umfjöllun um ráðstafanir sveitarfélagsins vegan Covid-19 faraldurs
Lagt fram
Afgreiðsla bæjarráðs:

Farið yfir næmnigreiningu sem unnin hefur verið af ráðgjafa KPMG, ásamt yfirliti um skuldastöðu sveitarfélagsins. Samþykkt að boðað verði til aukafundar í bæjarráði mánudaginn 27.07.2020 kl. 17:00, og óska eftir að heimsókn ráðgjafa KPMG á fundinn.

12.Ályktun stjórnar Reykjaneshafnar

2004008

Stjórn Reykjaneshafnar sendir sveitarstjórnum á Suðurnesjum bókun um uppbyggingu hafna. Einnig fylgir með erindi Guðmundar Pétursson, hvatning til sveitarstjórna á Suðurnesjum um málefnið, ásamt upplýsingum um afgreiðslu annarra sveitarfélaga á Suðurnesjum í málinu.
Lagt fram
Afgreiðsla bæjarráðs:
Áskorun til ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur - Ákall um auknar framkvæmdir
Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga lýsir yfir áhyggjum sínum yfir dökkri stöðu atvinnumála á Suðurnesjum og kallar eftir nauðsynlegum aðgerðum og samráði við ríkisstjórn Íslands án tafar.
Suðurnesin hafa orðið fyrir tvöföldu áfalli á skömmum tíma, fyrst með falli WOW Air, með tilheyrandi 30% samdrætti í flugsamgöngum, og nú því reiðarslagi sem heimsfaraldrinum fylgir. Ljóst er að áhrifin munu valda sögulegu atvinnuleysisem nú nálgast á þriðja tug prósenta á svæðinu. Höggið kallar á fumlausar aðgerðir, samstöðu og lausnir sem leiða til öflugrar viðspyrnu.
Bæjarráð hvetur því ríkisstjórnina til þess að beita sér strax fyrir leiðréttingu ríkisframlaga til stofnanna á Suðurnesjum og flýtingu framkvæmda eins og kostur er. Horft verði til þeirra verkefna sem þegar hafa verið kynntfyrir ríkisvaldinu auk verkefna á sviði öryggismála, menntamála, samgangna og heilbrigðismál sem ráðast má í með skömmum fyrirvara.
Bæjarráð fagnar þeim almennu aðgerðum sem nú þegar hefur verið ráðist í en krefst þess að sérstaklega sé tekið tillit til þeirra svæða á Íslandi sem verst verða úti.
Bæjarráð mun gera allt sem í hennar valdi stendur til þess að standa vörð um velferð íbúa í gegnum þá erfiðleika sem við stöndum frammi fyrir sem samfélag. Saman munum við vinna sigur á þeirri heilbrigðisvásem að steðjar og endurreisa hér blómlega byggð þar sem framsækni, virðing og eldmóður tryggir heilsu og lífsgæði okkar allra.

13.Húsnæðismál Keilis

2001024

Erindi Keilis um aðkomu sveitarfélaga vegna aðsteðjandi rekstrarvanda. Gestir fundarins eru Kjartan Már Kjartansson og Jóhann Friðrik Friðriksson.
Samþykkt
Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að Sveitarfélagið Vogar kaupi hlut í fasteignafélagi Keilis eins og lagt er upp með í gögnum málsins. Settir eru fyrirvarar um samþykki Kadeco og allra sveitarfélaganna á Suðurnesjum svo og sjálfbærni skólans til framtíðar. Forsenda fyrir kaupunum er að langtímasamningur við mennta- og menningarmálaráðuneyti um leigu fasteignarinnar liggi fyrir. Þegar samningur um kaupin liggur fyrir skal hann lagður fyrir bæjarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

14.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 56

2003002F

Lagt fram
Afgreiðsla bæjarráðs:
Fundargerðin lögð fram.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 56 Afgreiðsla: Aðaluppdrættir eru samþykktir. Samræmist aðal- og deiliskipulagi, mannvirkjalögum nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012.

  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 56 Afgreiðsla: Byggingaráformin eru samþykkt. Umsóknin samræmist aðal- og deiliskipulagi, mannvirkjalögum nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Útgáfa byggingarleyfis er háð skilyrðum 2.4.4. gr. byggingarreglugerðar. Áskilin er öryggis- og lokaúttekt byggingarfulltrúa, skv. ákvæðum 3.8. og 3.9. kafla byggingarreglugerðar.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 56 Afgreiðsla: Breytingin er samþykkt. Umsóknin samræmist aðalskipulagi, mannvirkjalögum nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 56 Afgreiðsla: Niðurrif er samþykkt. Áskilið er að byggingarefni verði fjarlægt og komið á viðurkenndan móttökustað til förgunar eftir því sem við á.
  • Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 56 Afgreiðsla: Tekið er fram að samþykkt á stofnun lóðar felur ekki í sér heimild til framkvæmda af neinu tagi eða gerð skipulags, sem skulu vera í samræmi við ákvæði Skipulagslaga nr. 123/2010 og Skipulagsreglugerð nr. 90/2013. Um er að ræða staðfestingu á áður gerðum gjörningi skv. afsali. Stofnun lóðar er samþykkt skv. fyrirliggjandi gögnum.

15.Fundargerðir Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 2020

2002039

Fundargerð 755. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lagt fram
Afgreiðsla bæjarráðs:
Fundargerðin lögð fram.

16.Fundir Reykjanes fólkvangs 2020

2002049

Fundargerð stjórnar Reykjanes fólkvangs frá 11.03.2020
Lagt fram
Afgreiðsla bæjarráðs:
Fundargerðin lögð fram.

17.Fundargerðir Almannavarna Suðurnesja 2019

1907022

Fundargerð Almannavarnarnefndar frá 26.03.2020
Lagt fram
Afgreiðsla bæjarráðs:
Fundargerðin lögð fram.

Fundi slitið - kl. 08:50.

Getum við bætt efni síðunnar?