Fundargerð afgreiðslufundar skipulags- og byggingarfulltrúa
Sveitarfélagsins Voga
9. fundur
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa Sveitarfélagsins Voga, haldinn miðvikudaginn 18. maí 2011 kl. 14:40 að Iðndal 2.
Mætt eru: Sigurður H. Valtýsson skipulags- og byggingarfulltrúi og Eirný Vals bæjarstjóri sem ritar fundargerð í tölvu.
Byggingarleyfi
Fagridalur 5, Anna Sigurðardóttir og Ásmundur Ásmundsson sækja um byggingarleyfi fyrir frágangi á lóðarmörkum með grjóthleðslu og girðingu við Stapaveg skv. umsókn dags. 11.05.2011 og meðfylgjandi rissi.
Afgreiðsla: Samþykkt, samræmist mannvirkjalögum nr. 160/2010.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 14:45