Fundargerð afgreiðslufundar skipulags- og byggingarfulltrúa
Sveitarfélagsins Voga
4. fundur
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa Sveitarfélagsins Voga, haldinn miðvikudaginn 16. júní 2010 kl. 15:00 að Iðndal 2.
Mætt eru: Sigurður H. Valtýsson skipulags- og byggingarfulltrúi og Eirný Vals bæjarstjóri sem ritar fundargerð í tölvu.
Byggingarleyfi
Spilda á Dal úr landi Stóra Knarrarness II, Vatnsleysuströnd, landnr. 211259. Umsókn Péturs Hlöðverssonar mótt. 25.03.2010 um byggingarleyfi fyrir einbýlishús skv. aðaluppdráttum HSÁ teiknistofu dags 01.12.2008.
Afgreiðsla: Samþykkt, samræmist skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997.
Stóru-Vogaskóli Vogum. Umsókn Eignarhaldsfélagsins Fasteignar dags. 04.06.2010 um byggingarleyfi fyrir breytingu á Tjarnarsal sem felst í gerð flóttaleiðar á vesturhlið þar sem nú er gluggi skv. aðaluppdráttum THG arkitekta br.dags. 02.06.2010.
Afgreiðsla: Samþykkt, samræmist skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 15.10