Fundargerð afgreiðslufundar skipulags- og byggingarfulltrúa
Sveitarfélagsins Voga
2. fundur
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa Sveitarfélagsins Voga, haldinn miðvikudaginn 28. apríl 2010 kl. 15:25 að Iðndal 2.
Mætt eru: Sigurður H. Valtýsson skipulags- og byggingarfulltrúi og Eirný Vals bæjarritari sem ritar fundargerð í tölvu.
Byggingarleyfi
Grindavíkurbær sækir um uppsetningu strætóbiðskýla við gatnamót Grindavíkurvegar og Reykjanesbrautar skv. uppdráttum Tækniþjónustu SÁ ehf. dags. 09.04.2010 og byggingarlýsingu byggingarfulltrúans í Grindavík.
Fyrir liggur samþykki Vegagerðarinnar skv. tölvupósti dags. 12.04.2010
Afgreiðsla: Samþykkt, samræmist skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 15.30