Fundargerð afgreiðslufundar skipulags- og byggingarfulltrúa
Sveitarfélagsins Voga
14. fundur
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa Sveitarfélagsins Voga, haldinn miðvikudaginn 9. maí 2012 kl. 14:55 að Iðndal 2.
Fundin sitja: Anna Sigurðardóttir og Sigurður H. Valtýsson skipulags- og byggingarfulltrúi sem ritar fundargerð í tölvu.
Byggingarleyfi
Kálfatjörn, Golfklúbbur Vatnsleysustrandar sækir um byggingarleyfi fyrir jarðvegsskýlum skv. umsókn dags 30.04.2012 og aðaluppdráttum Tækniþjónustu SÁ ehf. dags. 24.04.2012.
Afgreiðsla: Samþykkt, samræmist aðal- og deiliskipulagi og mannvirkjalögum nr. 160/2010.
Hofgerði 4, Viðar M. Pétursson sækir um byggingarleyfi fyrir klæðningu útveggja með málmklæðningu og einangrun útveggja skv. umsókn dags 08.05.2012.
Afgreiðsla: Samþykkt, samræmist mannvirkjalögum nr. 160/2010.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 15:00