Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

71. fundur 04. mars 2022 kl. 10:00 - 10:15 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Harpa Rós Drzymkowska
  • Davíð Viðarsson
Fundargerð ritaði: Davíð Viðarsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Iðndalur 10A - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

2112017

Ás smíði byggingarfélag ehf kt. 600319-1400 sækir um samþykkt byggingaráforma og byggingarleyfi fyrir Iðndal 10a skv. umsókn dagsett 19.12.2021.
Sótt er um fyrir iðnaðarhúsnæði en byggingarefni hússins verður stálgrind og yl-einingar skv. aðaluppdráttum 20.11.2017, gerða af Sæmundi Óskarssyni.
Samþykkt
Byggingaráformin eru samþykkt. Umsóknin samræmist aðal- og deiliskipulagi, mannvirkjalögum nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Útgáfa byggingarleyfis er háð skilyrðum 2.4.4. gr. byggingarreglugerðar. Áskilin er öryggis- og lokaúttekt byggingarfulltrúa, skv. ákvæðum 3.8. og 3.9. kafla byggingarreglugerðar.

2.Hrafnaborg 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

2112007

Kristinnn Ragnarson arkitekt sækir um samþykkt byggingaráforma og byggingarleyfi fyrir eiganda, ICE work ehf. kt: 621112-0310, skv. umsókn dags. 02.12.2021. Sótt er um fyrir 10 íbúða fjölbýlishúsi skv. aðaluppdráttum 02.12.2021, gerða af Kristinn Ragnarson arkitekt ehf.
Samþykkt
Byggingaráformin eru samþykkt. Umsóknin samræmist aðal- og deiliskipulagi, mannvirkjalögum nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Útgáfa byggingarleyfis er háð skilyrðum 2.4.4. gr. byggingarreglugerðar. Áskilin er öryggis- og lokaúttekt byggingarfulltrúa, skv. ákvæðum 3.8. og 3.9. kafla byggingarreglugerðar.

Fundi slitið - kl. 10:15.

Getum við bætt efni síðunnar?