9. fundur umhverfisnefndar var haldinn miðvikudaginn 11. október 2006 að Iðndal 2.
Fundinn sátu: Þorvaldur Örn Árnason, Rakel Rut Valdimarsdóttir,
Guðbjörg Theodórsdóttir, Snæbjörn Reynisson
og Helga Ragnarsdóttir sem jafnframt ritar fundargerð.
Dagskrá
1. Fundargerð síðasta fundar
Lagfæringar gerðar á fundargerð. Nafni Snæbjarnar Reynissonar bætt við.
2. Skipan í vinnuhóp vegna umhverfisviðurkenninga
Guðbjörg og Rakel Rut taka að sér að semja drög að verklagsreglum vegna
umhverfisviðurkenninga í sveitarfélaginu.
3. Tillögur að reglum varðandi umgengni og umhverfismál
Drög að reglum um umgengni á byggingarsvæðum í sveitarfélaginu lögð fram.
Ákveðið að vinna nánar að reglunum með byggingareglugerð til hliðsjónar.
Aðrar umgengnisreglur bíða frekari umræðu.
4. Staðardagskrá 21
Tillaga og frumdrög skoðuð og vinna við málaflokka skipulögð.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:45