Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga

43. fundur 18. október 2022 kl. 17:30 - 19:50 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Guðrún Sigurðardóttir varaformaður
  • Andri Rúnar Sigurðsson formaður
  • Ingþór Guðmundsson aðalmaður
  • Friðrik V. Árnason aðalmaður
  • Guðmundur Kristinn Sveinsson aðalmaður
  • Eðvarð Atli Bjarnason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Davíð Viðarsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs
  • Gunnar Axel Axelsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Davíð Viðarsson Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs
Dagskrá

1.Hafnargata 101 - kynning Minjastofnunar

2210010

Minjastofnun Íslands hefur óskað eftir því að fá að kynna tillögur sínar vegna mögulegrar uppbyggingar og nýtingar á húsi og lóð Hafnargötu 101.
Afgreiðsla skipulagsnefndar: Nefndin þakkar aðilum Minjastofnunar fyrir góða og áhugaverða kynningu.

2.Hafnargata 101 - uppbygging og þróun.

2104054

Lögð eru fram drög að kynningargögn vegna uppbyggingar og þróunar á lóð Hafnargötu 101. Um þróunarreit er að ræða þar sem miklir möguleikar eru fyrir hendi.
Afgreiðsla skipulagsnefndar: Nefndin leggur til við bæjarstjórn að svæðið verði auglýst sem þróunarreitur. Við val á umsækjendum verður sérstaklega horft til þess að hugmyndir um hönnun, skipulag og framkvæmdir taki mið af einkennum, ásýnd og sögu svæðisins og uppbygging styðji við jákvæða atvinnuþróun í ört stækkandi sveitarfélagi.

3.Deiliskipulagsbreyting miðbæjarsvæði

2208022

Tekið fyrir að nýju. Í breytingunni felst að byggingareitum fjölgar úr tveimur í þrjá. Heimilt verður að byggja á 1-2 hæðum fyrir miðbæjarstarfsemi, verslun og þjónustu. Einnig er heimilit að byggja fjölbýlishús á 3-4 hæðum. Ásamt því eru settir skilmálar um nýtingarhlutfall og fjölda íbúða. Fyrir liggur úthlutun bæjarráðs á lóðinni.
Hafnað
Afgreiðsla skipulagsnefndar: Nefndin hafnar erindinu og vill halda í fyrra skipulag.

4.Deiliskipulag og uppbygging á reit IB-5

2205002

Lögð er fram skipulagslýsing vegna deiliskipulags fyrir nýja íbúðabyggð ofan við Dali, nánar tiltekið svæði ÍB-5 í gildandi aðalskipulagi, skv. 1 mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ekkert deiliskipulag er til fyrir svæðið og því er um að ræða nýtt deiliskipulag sem samræmist gildandi aðalskipulagi.
Samþykkt
Afgreiðsla skipulagsnefndar: Nefndin leggur til við bæjarstjórn að skipulagslýsingin verði kynnt skv. 3. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010

5.Grænaborg - breyting á deiliskipulagi

2005039

Tekið fyrir að nýju, deiliskipulagsbreytingin felst í breytingu á lóðum, húsagerðum, ásamt því að bætt er við lóð fyrir dælu- og hreinsistöð.
Samþykkt
Afgreiðsla skipulagsnefndar: Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingu á deiliskipulagskipulagi skv. 3. mgr. 41. skipulagslaga nr. 123/2010.

6.Umsókn um framkvæmdaleyfi Suðurnesjalína 2

2104113

Bæjarstjórn vísar málinu aftur til Skipulagsnefndar vegna nýrra gagna í málinu. Nefndinni er falið að yfirfara tillögu sína að afgreiðslu með hliðsjón af þeim upplýsingum sem nú liggja fyrir.
Afgreiðsla skipulagnefndar: Nefndin leggur til við bæjarstjórn að fengin verði verkefnastjóri til að afla upplýsinga og leggja mat á ný gögn í málinu.

Fundi slitið - kl. 19:50.

Getum við bætt efni síðunnar?