Vegagerðin hefur tekið við akstri Vogastrætó

Þann 2. maí sl. tók Vegagerðin við akstri Vogastrætó og sinna Hópbílar þeim akstri.

Tímatafla er samræmd akstri Leiðar 55 á virkum dögum yfir vetrartímann, en keyrir ekki í hádeginu.

Fram til loka maímánaðar verður akstur Vogastrætó eftir sömu tímatöflu og áður en unnið er að breytingum á þjónustunni og verða þær kynntar nánar á íbúafundi mánudaginn 13. maí nk.

 

Vegagerðin og  Hópbílar taka við ábendingum um aksturinn.