25. febrúar 2010
Fundur nr. 49
Fundur haldinn í bæjarstjórn fimmtudaginn 25. febrúar, 2010 kl. 18.00 í Álfagerði.
Mættir eru bæjarfulltrúarnir: Birgir Örn Ólafsson, Hörður Harðarson, Bergur Álfþórsson, Inga Rut Hlöðversdóttir, Inga Sigrún Atladóttir, Íris Bettý Alfreðsdóttir og Jón Elíasson, varamaður Sigurðar Kristinssonar.
Einnig mættur: Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri er ritar fundargerð.
Birgir Örn Ólafsson forseti bæjarstjórnar stýrir fundi.
1. Fundargerðir 85., 86 og 87. funda bæjarráðs.Forseti gefur orðið laust varðandi einstök atriði fundargerðanna.
Fundargerðirnar eru samþykktar samhljóða.
Til máls tóku: Birgir Örn,
2. Unglingalandsmót í Vogum 2012.Fyrir fundinum liggur tillaga Undirbúningsnefndar vegna umsóknar um Unglingalandsmót UMFÍ í Vogum 2012.
Bæjarstjórn þakkar nefndarmönnum fyrir góð störf.
Forseti gefur orðið laust.
Inga Sigrún leggur fram eftirfarandi bókun.
Eftir að hafa farið vandlega yfir nauðsynlegan aðbúnað og uppbyggingu fyrir unglingalandsmót í Sveitarfélaginu 2012 teljum við að ekki sé tímabært að sækja um mótið. Það fé sem er ætlað til íþróttamannvirka á þriggja ára áætlun teljum við ekki nægja fyrir þeim frjálsíþróttavelli sem fulltrúi Ungmennasambands Íslands taldi nauðsynlegt að byggja. Við viljum leggja til að þau framlög sem nú þegar er ákveðið að verja í uppbyggingu íþróttamannvirkja fari í að byggja betri aðstöðu fyrir þær greinar sem nú þegar eru stundaðar í sveitarfélaginu. Þannig mætti efla það starf sem unnið er nú þegar auk þess sem hægt yrði að styðja betur við unglingastarf innan UMFÞ.
Bergur leggur fram eftirfarandi bókun.
Ég undrast það mjög að bæjarstjóraefni H- listans skuli nú koma fram með tillögur um breytingar á þeirri tillögu sem hún sjálf stóð að í vinnu undirbúningshóps um Unglingalandsmót, en lét það algerlega ógert á meðan vinnu hópsins stóð. Lýsi ég vanþóknun minni á þessum vinnubrögðum H-lista manna.
Inga Sigrún leggur fram eftirfarandi bókun.
Ég skil ekki hvernig fulltrúi E-lista hefur fengið það út að ég hafi verið að skammast út í vinnu nefndarinnar, það var ég alls ekki að gera. Ég var að tala um afstöðu okkar í H-listanum.
Forseti ber upp tillögu um að bæjarstjóra verði falið að undirrita viljayfirlýsingu um að Sveitarfélagið Vogar muni leggja sitt af mörkum til þess að UMFÞ geti haldið Unglingalandsmót í Vogum 2012 í samræmi við tillögu nefndarinnar, drög að hönnun og fjárheimildir til uppbyggingar íþróttasvæðisins á þriggja ára áætlun sveitarfélagsins.
Samþykkt með fjórum atkvæðum gegn þremur.
Meirihluti E-listans leggur fram eftirfarandi bókun.
Uppbygging við íþróttasvæðið í Vogum mun leggja grunn að enn öflugra íþrótta- og frístundastarfi í sveitarfélaginu sem skapar forsendur fyrir því að haldin verði stórmót í Sveitarfélaginu Vogum.
Til máls tóku: Birgir Örn, Inga Sigrún, Bergur,
3. Tillaga um að höfuðstóll Framfarasjóðs Sveitarfélagsins Voga verði nýttur til uppgreiðslu lána og hluta skuldbindinga í fasteignaleigusamningum. Seinni umræða.Tillagan, ásamt áliti sérfróðs aðila, var auglýst og kynnt á íbúafundi þann 15. desember síðastliðinn. Fyrri umræða fór fram 17. desember.
Forseti gefur orðið laust.
Inga Sigrún leggur fram eftirfarandi bókun.
Í fyrri umræðu hafnaði E-listinn því að hvert lán yrði reiknað út svo sjá mætti hvaða lán væri hagstætt að greiða upp. Þessi andstaða E-listans er til þess fallin að koma í veg fyrir gagnsæi í ákvarðanartökunni. Við ítrekum því fyrri afstöðu og leggjum til að ákvörðunartökunni verði frestað þar til slíkir útreikningar liggja fyrir.
Bæjarstjóri óskar að eftirfarandi verði bókað.
Tillagan er nú tekin til seinni umræðu. Við fyrri umræðu og á íbúafundi hefur komið fram hvernig útreikningarnir eru miðað við vænta ávöxtun ársins og þróun vaxta og skatta. Ef þróun verður á annan veg, reynir ekki á heimildina.
Ferlið við að sækja heimild til að nýta Framfarasjóðinn er tiltölulega langt og nauðsynlegt að sækja heimildina í upphafi árs til að hægt sé að greiða upp á lánin á árinu á sem hagstæðastan hátt. Rétt eins og gert er varðandi fjárhagsáætlun, þar sem fjárheimildir ársins eru sóttar. Ákvörðun um uppgreiðslu verður síðan kynnt í bæjarráði þegar og ef að því kemur.
Að mínu mati er varla hægt að ímynda sér gagnsærra ferli, en tillagan var kynnt og auglýst ásamt áliti sérfróðs aðila. Auk þess var tillagan rædd á opnum íbúafundi.
Inga Sigrún leggur fram eftirfarandi bókun.
Útreikningar á hverju láni fyrir sig voru ekki kynntir á íbúafundi. Fyrir einum bæjarfulltrúa var kynnt hvernig uppgreiðslu gæti verið háttað. Aldrei hefur verið lagt fram yfirlit þar sem öll lánin eru reiknuð út frá núverandi stöðu ásamt uppgreiðslugjaldi á þeim lánum sem ekki eru með uppgreiðsluheimild.
Forseti ber upp tillögu um að höfuðstóll Framfarasjóðs Sveitarfélagsins Voga verði nýttur til uppgreiðslu lána og hluta skuldbindinga í fasteignaleigusamningum. Jafnframt leggur forseti til að tillaga um uppgreiðslu lána eða skuldbindinga verði kynnt í bæjarráði í hvert sinn slíkt stendur til.
Samþykkt með fjórum atkvæðum gegn þremur.
Til máls tóku: Birgir, Inga Sigrún, Róbert,
4. Niðurstaða í dómsmáli Tryggva Guðmundssonar og Hjördísar Hilmarsdóttur gegn Sveitarfélaginu Vogum, varðandi skráningu lögheimilis.
Dómur Héraðsdóms Reykjaness liggur fyrir fundinum. Sveitarfélagið Vogar er sýknað af öllum kröfum.
Forseti gefur orðið laust.
Til máls tóku: Birgir Örn,
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18.35
Til baka