19. janúar 2010
Fundur nr. 12
Frístunda- og menningarnefndar Sveitarfélgsins Voga haldinn í Félagsmiðstöðinni við Hafnargötu fimmtudaginn 14.01.2010 kl. 18:30.
Mættir fundarmenn: Bergur Álfþórsson, Brynhildur Hafsteinsdóttir, Marta Guðrún Jóhannesdóttir og Sigríður Ragna Birgisdóttir.
Ólafur Þór Ólafsson (frístunda- og menningarfulltúi Sv. Voga) sat einnig fundinn og ritaði fundargerð.
Kristján Árnaon og Ragnar Davíð Riordan voru forfallaðir og kom einn varamaður í þeirra stað, en hinn varamaður þeirra átti ekki heimangengt.
1. Mögulegt samstarf árið 2010.
Tölvupóstur frá Hildi Björk Pálsdóttur f.h. SEEDS Iceland dags. 11.12.2009 þar sem lýst er yfir áhuga á því að samstarf SEDDS við Sveitarfélagið Voga verði endurvakið.
Frístunda- og menningarfulltrúa falið afla nánari upplýsinga fyrir næsta fund svo sem kostnað og nauðsynlegan viðbúnað.
2. Aldur sveitarfélagsins.
Tölvupóstur frá Róberti Ragnarssyni f.h. bæjarráðs dags. 11.01.2010 þar sem því er vísað til FMN að vinna tillögur að viðburðum til að minnast afmælis sveitarfélagsins.
FMN telur rétt að stefna að því að það fari fram þrír viðburðir á árinu 2010 í tengslum við afmæli sveitarfélagsins. Í mars verði sögu- og menningartengdur viðburður, laugardaginn 19. júní verði hátíð með áherslu á fjölskylduna og á haustdögum verði sameiginlegt verkefni skólastofnanna í sveitarfélaginu í tengslum við afmælið. Frístunda- og menningarfulltrúa falið að ræða við Minjafélagið um viðburð í mars og skólastjórnendur um verkefni á haustdögum.
3. Umsókn um styrk úr afreksmannasjóði Sv. Voga.
Bréf frá Þorgerði Magnúsdóttur dags. 08.09.2009. Frestað mál frá 10. fundi FMN 21.10.2009.
Lagt er til að Þorgerður Magnúsdóttir hljóti styrk að upphæð kr. 25.000,- úr afreksmannasjóði Sv. Voga í samræmi við gildandi reglur.
4. Reglur afreksmannasjóðs.
Frístunda- og menningarfulltrúi lagði fram drög að endurskoðuðum reglum um Afreksskjóð íþróttamanna.
Umræður um breytingar á reglum sjóðsins. Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
5. Viðburðardagatal ársins 2010.
Frístunda- og menningarfulltrúi lagði fram drög að viðburðadagatali FMN fyrir árið 2010.
Lagt fram.
6. Rekstur FMN árið 2010.
Frístunda- og menningarfulltrúi lagði fram rekstrarramma ársins 2010 samkvæmt samþykktri fjárhagsáætlun.
Eftir umræður leggur FMN leftirfarandi til:
Hætt verði að bjóða upp á heitan mat í hádeginu í Álfagerði frá og með 01.02.2010 og fundnar verði aðrar leiðir til að þjónusta þá einstaklinga sem nýta sér þessa þjónustu. Þá er frístunda- og menningarfulltrúa falið að setja upp nýtt skipulag fyrir félagsstarf eldri borgara með það að markmiði að ná markmiðum fjárhagsáætlunar.
Varðandi annar rekstur á vegum FMN er frístunda- og menningarfulltrúa falið að vinna tillögur í samræmi við markmið fjárhagsáætlunar og leggja þær fram á næsta fundi nefndarinnar.
7. Val á íþróttamanni ársins.
Frístunda- og menningarfulltrúa er falið að auglýsa eftir tilnefningu til íþróttamanns ársins í samræmi við reglur.
8. Samstarfssamningur við skáta.
Lögð voru fram drög að samkomulag um barna- og ungmennastarf á vegum Hraunbúa í Vogum.
FMN fangnar því að skátastarf sé að hefjast á ný í Vogunum og hefur miklar væntingar til þess starfs.
9. Fundargerð SamSuð-fundar, dags. 10.12.2009.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
10. Fundargerð SamSuð-fundar, dags. 07.01.2010.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
11. Fundargerð forvarnarnefndar Sandgerðisbæjar, Voga og Garðs SVG, dags. 07.12.2009.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
12. Kynningarfundur vegna listar án landamæra, dags. 25.11.2009.
Fundargerð frá opnum fundi um Listahátíðina List án landamæra á Suðurnesjum, haldinn í Bíósal Duushússins í Reykjanesbæ, lögð fram til kynningar.
13. Fundargerð fundar menningarfulltrúa Sveitarfélaganna á Suðurnesjum, dags. 03.12.2009.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 20:55.
Bergur Álfþórsson Brynhildur Hafsteinsdóttir
Marta Guðrún Jóhannesdóttir Sigríður Ragna Birgisdóttir
Ólafur Þór Ólafsson, fundarritari
Til baka